GRI tilvísunartafla
Árs- og samfélagsskýrsla Arion banka 2021 hefur verið undirbúin til samræmis við Global Reporting Initiative, GRI Core og UFS leiðbeiningar Nasdaq. Þá er einnig horft til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og 10 grundvallarviðmiða Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Arion banki er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi og hefur unnið að innleiðingu markmiðanna frá undirritun í september 2019. Upplýsingar um framvindu þeirrar vinnu er að finna hér.
Upplýsingar sem settar eru fram í GRI tilvísunartöflu gilda fyrir árið 2021 og tengjast meginstarfsemi Arion banka. Lögð er áhersla á að uppfylla þá þætti sem snúa að lýsingu á starfseminni, samfélagslegum áhrifum hennar, mannauði, umhverfisáhrifum, stjórnarháttum og efnahag.
Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á ófjárhagslegri upplýsingagjöf Arion banka 2021 sem er sett fram samkvæmt Global Reporting Initiative (GRI) og UFS leiðbeiningum Nasdaq.
Gögn sem snúa að umhverfisáhrifum bankans eru unnin í samstarfi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Klappir grænar lausnir. Gögnum er í flestum tilfellum streymt beint frá þjónustuaðilum í umhverfiskerfið Klappir Core. Í þeim tilfellum sem gagnastraumar voru ekki tiltækir var notast við bókhaldsgögn. Klappir grænar lausnir yfirfara jafnframt gögnin.
Gögn sem snúa að mannauði koma úr mannauðskerfi bankans og gögn sem snúa að stjórnarháttum byggja á stjórnarháttayfirlýsingu bankans. Fjárhagsupplýsingar hafa verið endurskoðaðar og staðfestar af endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte.
Við hlustum á hagsmunaaðila okkar og tökum tillit til þeirra sjónarmiða við val okkar á efnistökum í þessari skýrslu.
Upplýsingar um Arion banka |
||
GRI: 102-1 | Nafn fyrirtækis | Arion banki hf. |
GRI: 102-2 | Lýsing á starfsemi, þjónustu og vörum | Um Arion banka |
GRI: 102-3 | Staðsetning höfuðstöðva | Borgartún 19, 105 Reykjavík |
GRI: 102-4 | Staðsetning starfsstöðva | Útibú og þjónusta |
GRI: 102-5 | Eignarhald og lögform |
Hlutir og hluthafar í lok árs 2021 |
GRI: 102-6 | Markaðir | Um Arion banka |
GRI: 102-7 | Stærð og umfang fyrirtækis | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir Mannauður Ársreikningur |
GRI: 102-8 | Samsetning vinnuafls eftir eðli starfa, samningum og staðsetningu starfsstöðva | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir Mannauður |
GRI: 102-9 | Aðfangakeðja félagsins | Ábyrg innkaup |
GRI: 102-10 | Mikilvægar breytingar á félaginu og aðfangakeðju | Helstu atburðir ársins |
GRI: 102-11 | Útlistun á beitingu varúðarákvæða eða aðferða innan fyrirtækisins |
Áhættuskýrsla |
GRI: 102-12 | Utanaðkomandi sáttmálar um fjárhagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg málefni eða önnur verkefni sem fyrirtækið hefur innleitt eða styður | Ábyrg bankastarfsemi: Skuldbindingar og vottanir |
GRI: 102-13 | Aðild að samtökum og/eða íslenskum/alþjóðlegum þrýstihópum þar sem fyrirtækið á fulltrúa í stjórn, tekur þátt í verkefnum, leggur til fé eða lítur á aðild sem mikilvæga | Ábyrg bankastarfsemi: Skuldbindingar og vottanir Einnig á bankinn aðild að Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráði. |
Stefna |
||
GRI: 102-14 | Yfirlýsing frá æðsta stjórnanda fyrirtækis | Ávarp stjórnarformanns og ávarp bankastjóra |
Siðferði og heilindi |
||
GRI: 102-16 | Gildi, grundvallarreglur og viðmið í starfseminni | Stefna og framtíðarsýn Siðareglur |
Stjórnarhættir |
||
GRI: 102-18 | Stjórnskipulag | Stjórnarhættir: Stjórn og undirnefndir Ábyrg bankastarfsemi: Stjórnarhættir sjálfbærnimála og áhættustýring |
GRI: 102-19 | Framsal valds | Ábyrg bankastarfsemi: Stjórnarhættir sjálfbærnimála og áhættustýring Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
GRI: 102-20 | Ábyrgð á framkvæmdastjórnarstigi á efnahags-, umhverfis- og samfélagslegum þáttum | Ábyrg bankastarfsemi: Stjórnarhættir sjálfbærnimála og áhættustýring |
GRI: 102-22 | Samsetning stjórnar og nefnda á vegum stjórnar | Stjórnarhættir: Stjórn og undirnefndir |
GRI :102-23 | Upplýsingar um hvort stjórnarformaður er einnig framkvæmdastjóri | Stjórnarformaður er ekki í framkvæmdastjórn |
GRI: 102-24 | Tilnefning og val í stjórn | Starfsreglur tilnefningarnefndar |
GRI: 102-25 | Hagsmunaárekstrar | Upplýsingar um aðgerðir til að forðast hagsmunaárekstra eru aðgengilegar í starfsreglum stjórnar Listi yfir tengda aðila er til staðar innan bankans en er ekki birtur opinberlega. Upplýsingar um stærstu hluthafa er að finna hér. |
GRI: 102-26 | Hlutverk stjórnar í að setja gildi og stefnur | Starfsreglur stjórnar |
GRI: 102-32 | Æðsti stjórnandi sem formlega metur og samþykkir sjálfbærniskýrslu og tekur ábyrgð á að allir efnisþættir séu útlistaðir og metnir | Bankastjóri |
GRI: 102-33 | Upplýsingar um hvernig mikils háttar málefnum er miðlað til stjórnar | Starfsreglur stjórnar |
Hagsmunaaðilar og félagafrelsi |
||
GRI: 102-40 | Listi yfir hagsmunaðila | Hagsmunaðilar |
GRI: 102-41 | Hlutfall starfsfólks sem á aðild að kjarasamningum eða starfar samkvæmt lögum á vinnumarkaði | 100% |
GRI: 102-42 | Aðferðir við val á hagsmunaðilum | Hagsmunaðilar |
GRI: 102-43 | Nálgun á samskipti við hagsmunaaðila | Hagsmunaðilar |
GRI: 102-44 | Helstu atriði og málefni sem hafa komið upp hjá hagsmunaðilum | Hagsmunaðilar |
Viðfangsefni skýrslunnar |
||
GRI: 102-45 | Eignir í samstæðureikningi | Ársreikningur |
GRI: 102-46 | Ferlið við ákvörðun efnisvals skýrslunnar | Stjórnunarnálgun Hagsmunaðilar |
GRI: 102-47 | Listi yfir efni sem hefur verið valið í skýrsluna | Stjórnunarnálgun Hagsmunaaðilar |
GRI: 102-48 | Breyttar forsendur upplýsingagjafar í skýrslu |
Gögn vegna umhverfisuppgjörs eru endurreiknuð samkvæmt nýjustu upplýsingum. Af því hlýst ákveðið misræmi ef uppgjör fyrir árið 2021 er borið saman við fyrri umhverfisuppgjör. Klappir grænar lausnir sáu um könnun meðal starfsfólks varðandi ferðavenjur til og frá vinnu árið 2021. Samanburður á milli áranna 2020 og 2021 er birtur með þeim fyrirvara að að annar aðili framkvæmdi könnunina fyrir bankann árið 2020. Sjálfbærniteymi EY sá um útreikninga á umhverfis- og loftslagsáhrifum grænna útlána árið 2021 í áhrifa- og úthlutunarskýrslu. Annar aðili sá um slíka útreikninga árið 2020 og því gæti verið um ólíka aðferðafræði að ræða.
|
GRI: 102-49 | Breytingar á skýrslugjöf | Ekki hafa verið gerðar grundvallarbreytingar á skýrslugjöf frá fyrra ári að öðru leyti en því að nú hefur sérstökum kafla um græn fjármál verið bætt við skýrsluna. |
GRI: 102-50 | Tímabil sem upplýsingar í skýrslunni ná til | Árið 2021 nema annað sé tekið fram |
GRI: 102-51 | Upplýsingar um hvenær síðasta skýrsla var gefin út | 17.02.2021 |
GRI: 102-52 | Tíðni skýrslu | Árlega |
GRI: 102-53 | Tengiliðir vegna upplýsinga er varða skýrsluna og efni hennar | Samskiptasvið Arion banka, samskiptasvid@arionbanki.is |
GRI: 102-54 | Lýsing á fylgni við GRI staðalinn | Þessi skýrsla hefur verið gerð í samræmi við GRI Core staðalinn |
GRI: 102-55 | Lýsing á GRI tilvísunartöflu | Í tilvísunartöflunni eru textar og vefslóðir á það efni sem við á hverju sinni. |
GRI: 102-56 | Staðfesting ytri aðila á efni skýrslunnar |
Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á ófjárhagslegri upplýsingagjöf Arion banka 2021 sem er sett fram samkvæmt Global Reporting Initiative (GRI) og UFS leiðbeiningum Nasdaq. Gögn sem snúa að umhverfisáhrifum bankans eru unnin í samstarfi við nýsköpunarfyrirtækið Klappir grænar lausnir. Gögnum er í flestum tilfellum streymt beint frá þjónustuaðilum í umhverfiskerfið Klappir Core. Í þeim tilfellum sem gagnastraumar voru ekki tiltækir var notast við bókhaldsgögn. Klappir yfirfara jafnframt gögnin. Gögn sem snúa að mannauði koma úr mannauðskerfi bankans og gögn sem snúa að stjórnarháttum byggja á stjórnarháttayfirlýsingu bankans. Fjárhagsupplýsingar hafa verið endurskoðaðar og staðfestar af Deloitte. |
Stjórnunarnálgun
GRI: 103-1 | Útskýring á viðfangsefni skýrslunnar og mörkum þess |
Í ársbyrjun 2021 gerði Arion banki könnun meðal hagsmunaaðila varðandi sjálfbærni og samfélagsábyrgð í samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið CIRCULAR Solutions sem vann úr niðurstöðunum. Allt starfsfólk og stjórnendur fengu könnunina senda sem og úrtak viðskiptavina, birgja, samstarfsaðila og hluthafa. CIRCULAR vann jafnframt mikilvægisgreiningu fyrir bankann út frá áhrifum bankans á sviði lánveitinga og fjárfestinga.
Við val á viðfangsefni og mörkum þess út frá GRI staðlinum tókum við tillit til niðurstaðna úr hagaðilakönnunni og mikilvægisgreiningu bankans. Sjá umfjöllun hér.
Líkt og fyrri ár horfum við einnig til UFS leiðbeininga sem Nasdaq á Íslandi og Norðurlöndunum hafa gefið út frá árinu 2017. Þessar leiðbeiningar, sem voru uppfærðar árið 2019, eiga að hjálpa fyrirtækjum sem eru skráð í kauphöll að upplýsa sína hagaðila um helstu atriði sem snúa að sjálfbærni á samanburðarhæfan máta.
Þrátt fyrir að bein umhverfisáhrif af starfsemi banka séu ekki mikil samanborin við aðrar atvinnugreinar teljum við engu að síður mikilvægt að upplýsa um þann þátt. Arion banki vill vera til fyrirmyndar þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum og allt skiptir máli, stórt og smátt. Bankinn hefur sett sér það markmið að draga úr losun í eigin starfsemi um 55% fyrir árið 2040 og hefur frá árinu 2015 verið aðili að loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar og þar með skuldbundið sig til að birta árangurinn. Við val á viðfangsefnum í tengslum við GRI staðalinn veljum við því þá þætti sem snúa að losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi bankans sem við teljum viðeigandi að birta.
Við gerum okkur engu að síður grein fyrir því að áhrif bankans í tengslum við umhverfis- og loftslagsmál eru mest þegar kemur að þjónustu okkar við viðskiptavini og þá ekki síst í gengum lánveitingar og eignastýringu. Við erum á þeirri vegferð að styðja betur við viðskiptavini okkar og samfélagið þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, meðal annars út frá markmiðum Parísarsamkomulagsins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Við munum, eftir því sem við náum betur utan um áhrif okkar lánasafns og fjárfestinga, upplýsa nánar um þau áhrif. Í ár birtum við samhliða árs- og sjálfbærniskýrslu áhrifa- og úthlutunarskýrslu bankans sem nær yfir úthlutun fjármuna sem aflað hefur verið með grænum skuldabréfaútgáfum og grænum innlánum árið 2021. Deloitte hefur endurskoðað nýtingu fjármuna sem aflað hefur verið með grænum skuldabréfaútgáfum og grænum innlánum með takmarkaðri vissu.
Ábyrg innkaup og samskipti við birgja í tengslum við þeirra frammistöðu í umhverfis- og loftslagsmálum skipta okkur máli og á árinu 2020 innleiddum við nýtt UFS birgjamat. Siðareglur birgja voru innleiddar á árinu 2021.
Mannauður bankans, jafnréttismál, fræðsla, heilsa og öryggi starfsfólk skipta miklu máli í starfsemi bankans og endurspeglast það meðal annars í stefnum bankans, svo sem mannauðsstefnu, fræðslustefnu, jafnréttisstefnu og heilsu- og öryggisstefnu.
Framkvæmdastjórn bankans hefur samþykkt sex heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem bankinn ætlar að leggja megináherslu á. Markmiðin sem unnið verður sérstaklega að eru markmið 5 um jafnrétti kynjanna, markmið 7 um sjálfbæra orku, markmið 8 um góða atvinnu og hagvöxt, markmið 9 um nýsköpun og uppbyggingu, markmið 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu og markmið 13 sem snýr að aðgerðum í loftslagsmálum. Þessi sex heimsmarkmið eru einnig höfð að leiðarljósi við val á efnisþáttum og mörkum þeirra.
Allir efnisþættir og mörk þeirra snúa að Arion banka, dótturfélög bankans eru ekki tekin með í þessari skýrslu nema það sé sérstaklega tekið fram.
GRI: 103-2 | Stjórnunarnálgun og þættir hennar |
Stýring einstakra viðfangsefna í GRI skýrslunni fer í gegnum sama ferli og önnur verkefni innan Arion banka, í gegnum stjórn eða yfirstjórn og viðeigandi svið og eftirlitseiningar.
Á árinu 2021 var sjálfbærninefnd sett á laggirnar og stýring á sjálfbærniáhættu í tengslum við umhverfis- og félagslega þætti og stjórnarhætti skilgreind sem hluti af áhættustýringarkerfi bankans. Sjá nánari upplýsingar hér.
Fjöldi stefna og reglna sem snúa að viðfangefni skýrslunnar hafa verið samþykktar af stjórn bankans og framkvæmdastjórn, meðal annars:
- Stefna Arion banka
- Stefna um sjálfbærni
- Umhverfis- og loftslagsstefna
- Mannauðsstefna
- Jafnréttisstefna
- Heilsu- og öryggisstefna
- Siðareglur
- Siðareglur birgja
- Reglur Arion banka um meðferð kvartana
- Persónuverndaryfirlýsing
- Reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
- Reglur um meðferð hagsmunaárekstra
Einnig er Arion banki aðili að ýmsum innlendum og erlendum sáttmálum og skuldbindingum í tengslum við ábyrga bankastarfsemi.
Vísað er í umfjöllun um aðgerðir okkar varðandi einstök viðfangsefni í GRI tilvísunartöflu.
GRI: 103-3 | Mat á stjórnunarnálguninni |
Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á ófjárhagslegri upplýsingagjöf Arion banka 2021 sem er sett fram samkvæmt Global Reporting Initiative (GRI) og UFS leiðbeiningum Nasdaq.
Arion banki fékk framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar með 90 stig af 100 mögulegum og er þar í flokki A3 á árinu 2021. Matið byggist á árangri bankans á sviði umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS). Um þrjátíu innlendir útgefendur hafa farið í gegnum mat Reitunar og er meðaleinkunn þeirra 67 stig af 100 mögulegum. Sjá nánar hér.
Efnahagur |
|||
Fjárhagsleg frammistaða | |||
GRI: 201-1 | Bein verðmætasköpun og -dreifing | Ársreikningur | |
GRI: 201-2 | Fjárhagsleg áhrif, áhætta og tækifæri af völdum loftslagsbreytinga |
Áhættuskýrsla | |
GRI: 201-3 | Yfirlit yfir skuldbindingar fyrirtækis vegna lífeyrisgreiðslna |
Samkvæmt kjarasamningum greiðir starfsfólk 4% af launum sínum í samtryggingarlífeyrissjóð og Arion banki greiðir 6% mótframlag. Bankinn greiðir 5,5% af heildarlaunum starfsmanns í séreignarsjóð fyrstu þrjú starfsárin en 7% eftir það. Í þeim tilvikum sem starfsmaður leggur til viðbótarframlag í séreignarsjóð greiðir fjármálafyrirtæki mótframlag að jöfnu, allt að 2% á móti 2% framlagi starfsmanns. |
|
GRI: 201-4 | Fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum | Arion banki fékk enga fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum árið 2021 | |
Óbein efnahagsleg áhrif | |||
GRI: 203-1 | Fjárfestingar í innviðum og þjónustu samfélagsins | Einstaklingar Fyrirtæki Ábyrg bankastarfsemi |
|
Öflun aðfanga | |||
GRI: 204-1 | Hlutfall innkaupa frá birgjum úr nærsamfélagi | Ábyrg innkaup | |
Aðgerðir gegn spillingu | |||
GRI: 205-1 | Mat á rekstri vegna áhættu sem tengist spillingu |
Áhættuskýrsla | |
GRI: 205-2 | Samskipti og þjálfun um stefnur og verklagsreglur gegn spillingu |
Áhættuskýrsla | |
GRI: 205-3 | Staðfest atvik um spillingu og aðgerðir sem gripið var til |
Áhættuskýrsla | |
Samkeppnishamlandi hegðun | |||
GRI: 206-1 | Heildarfjöldi lagalegra aðgerða vegna samkeppnismála, auðhringjamála og einokunar |
Engin slík mál komu upp á árinu 2021. | |
Umhverfi |
|||
Orkunotkun | |||
GRI: 302-1 | Orkunotkun í starfseminni |
Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
|
GRI: 302-3 | Orkunotkun í hlutfalli við umfang fyrirtækis | Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi | |
Vatn og frárennsli | |||
GRI: 303-5 | Vatnsnotkun | Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
|
Losun gróðurhúsalofttegunda | |||
GRI: 305-1 | Bein losun gróðurhúsalofttegunda (umfang 1) |
Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
|
GRI: 305-2 | Óbein losun gróðurhúsalofttegunda (umfang 2) |
Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
|
GRI: 305-3 | Önnur óbein losun gróðurhúsalofttegunda (umfang 3) |
Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi |
|
GRI: 305-4 | Kolefnisvísar í starfseminni | Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi | |
GRI: 305-5 | Aðgerðir til að draga úr útblæstri | Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi | |
Sorp | |||
GRI: 306-2 | Úrgangur eftir tegundum og förgunaraðferðum | Ófjárhagslegar upplýsingar: Umhverfi | |
Fylgni við lög og reglur |
|||
GRI: 307-1 | Sektir og viðurlög sem fyrirtækið hefur sætt vegna brota gegn umhverfisverndarlögum | Engin brot eða sektir árið 2021 | |
Mat á frammistöðu birgja varðandi umhverfismál |
|||
GRI: 308-1 | Hlutfall nýrra birgja sem voru rýndir með tilliti til umhverfisviðmiða | Ábyrg innkaup | |
Samfélagið |
|||
Mannauður | |||
GRI: 401-1 | Nýráðningar og starfsmannavelta eftir aldri, kyni og landssvæðum | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir | |
GRI: 401-3 | Fæðingarorlof | Upplýsingar um heildarfjölda starfsfólks sem átti rétt á fæðingarorlofi og tók orlof eftir kyni eru aðgengilegar hér. Upplýsingar um heildarfjölda starfsfólks sem snéri til baka og var enn starfandi hjá bankanum 12 mánuðum eftir endurkomu eru ekki tiltækar. |
|
Heilsa og öryggi starfsfólks |
|||
GRI: 403-3 | Heilsusamlegt vinnuumhverfi | Mannauður Heilsu- og öryggisstefna |
|
GRI: 403-6 | Aðgerðir til að styðja almennt við góða heilsu starfsfólks | ||
Þjálfun og fræðsla |
|||
GRI: 404-1 | Meðaltími fræðslu og þjálfunar starfsfólks | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir Mannauður |
|
GRI: 404-2 | Verkefni sem snúa að því að viðhalda og auka þekkingu starfsfólks og aðgerðir til að aðstoða starfsfólk við að aðlagast starfslokum | Arion banki leggur metnað sinn í að vanda til viðskilnaðar við starfsfólk sitt og miðar verklag að því að styðja við starfsfólk við starfslok með margvíslegum hætti. Mannauður |
|
GRI: 404-3 | Hlutfall þeirra sem fá reglulega endurgjöf á frammistöðu og þróun í starfi | Allt starfsfólk Arion banka fær reglulega endurgjöf. Hagsmunaaðilar Mannauður |
|
Fjölbreytileiki og jöfn tækifæri |
|||
GRI: 405-1 | Fjölbreytileiki meðal stjórnenda og starfsfólks eftir kyni og aldri | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir Mannauður |
|
GRI: 405-2 | Heildarlaun kvenna í samanburði við heildarlaun karla | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir | |
Mismunun |
|||
GRI: 406-1 | Fjöldi tilkynntra tilfella um mismunun og aðgerðir til að bregðast við þeim | Ófjárhagslegar upplýsingar: Félagslegir þættir |
|
Nærsamfélagið |
|||
GRI: 413-2 | Starfsemi með umtalsverð hugsanleg og/eða raunveruleg neikvæð áhrif á samfélagið |
Ávarp bankastjóra | |
Mat á frammistöðu birgja varðandi félagslega þætti |
|||
GRI: 414-1 | Hlutfall nýrra birgja sem hafa verið rýndir með tilliti til félagslegra viðmiða |
Ábyrg innkaup | |
Opinberar stefnur |
|||
GRI: 415-1 | Framlög til stjórnmálaflokka, stjórnmálamanna |
Stefna Arion banka um framlög til stórnmálastarfs Þrír stjórnmálaflokkar sóttu um og fengu styrk árið 2021 samkvæmt stefnu bankans varðandi styrki til stjórmálastarfs. Hver flokkur fékk samtals kr. 550.000. |
|
Markaðssetning |
|||
GRI: 417-2 | Tilfelli þar sem ekki var farið eftir lögum og reglum varðandi vörur og þjónustu | Engin tilfelli á árinu 2021. | |
GRI: 417-3 | Tilfelli þar sem ekki var farið eftir reglum varðandi markaðssetningu | Engin tilfelli á árinu 2021. | |
Persónuvernd viðskiptavina |
|||
GRI: 418-1 | Fjöldi kvartana varðandi brot á friðhelgi viðskiptavina og tap á gögnum viðskiptavina | Áhættuskýrsla | |
Fylgni við lög og reglur |
|||
GRI: 419-1 | Sektir vegna þess að ekki er farið eftir lögum og reglum á sviði samfélags- og/eða efnahagsmála | Engin brot á árinu 2021. |