Ábyrg bankastarfsemi

Arion banki leggur ríka áherslu á umhverfis- og félagsþætti í sinni starfsemi og góða og vandaða stjórnarhætti (UFS). Það hvernig bankar stýra fjármagni getur haft afgerandi áhrif á framgang sjálfbærrar þróunar í hverju landi fyrir sig og á heimsvísu og því eru mestu áhrif bankans fólgin í lánveitingum og fjárfestingum fyrir hönd viðskiptavina.

Kjarninn í stefnu bankans er að standa öðrum framar með snjöllum og traustum fjármálalausnum sem skapa viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu verðmæti til framtíðar. Yfirskrift stefnu bankans um sjálfbærni er saman látum við góða hluti gerast og felur meðal annars í sér að bankinn vilji vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi og samfélagi. Hjá Arion banka leggjum við áherslu á að samfélagsábyrgð og sjálfbærni sé hluti af daglegri starfsemi bankans, ákvarðanatöku og ferlum.

Gildi Arion banka köllum við hornsteina og eiga þeir að vera leiðbeinandi við ákvarðanatöku og í öllu sem starfsfólk bankans gerir. Hornsteinarnir koma inn á hlutverk, hugarfar og hegðun en þeir eru: gerum gagn, látum verkin tala, komum hreint fram og finnum lausnir. Siðareglur bankans eru síðan viðmið fyrir starfsfólk til að stuðla að ábyrgri ákvarðanatöku og eru samþykktar af stjórn.

Stefna Arion banka um sjálfbærni

Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðbæra viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi, efnahagslífi og því samfélagi sem við störfum í. Við setjum okkur í spor viðskiptavina og leitumst stöðugt við að gera betur í dag en í gær.

Við störfum á eftirsóknarverðum vinnustað þar sem þekking skapar verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, fjárfestum og samfélaginu öllu til góða.

Á myndinni hér fyrir neðan má sjá helstu áhersluatriði Arion banka í tengslum við sjálfbærni. 

Skýrslugjöf um sjálfbærni og ófjárhagslegar upplýsingar

Upplýsingar í árs- og sjálfbærniskýrslu eru unnar og birtar samkvæmt Global Reporting Initiative staðlinum, GRI Core, sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að miðla upplýsingum tengdum samfélagsábyrgð og sjálfbærni á gegnsæjan og samanburðarhæfan hátt.

Við miðlun upplýsinga um ófjárhagslega þætti í starfseminni er einnig notast við UFS viðmið Nasdaq á Norðurlöndunum og 10 grundvallarviðmið Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð. Einnig er horft til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í annað sinn er gerð grein fyrir framvindu innleiðingar á meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking, en Arion banki varð aðili að meginreglunum í september 2019.

Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á ófjárhagslegri upplýsingagjöf í árs- og sjálfbærniskýrslu Arion banka 2021 sem er sett fram samkvæmt Global Reporting Initiative (GRI Core) og UFS leiðbeiningum Nasdaq.

Álit Deloitte með takmarkaðri vissu

 

Arion banki með framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar

Arion banki hlaut árið 2021 í annað sinn framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar og fékk 90 stig af 100 mögulegum og er í flokki A3. Arion banki er vel fyrir ofan meðaltal í öllum flokkum í samanburði við innlenda útgefendur sem hafa farið í gegnum greiningu hjá Reitun (fjöldi um 34). Meðaltalseinkunn markaðarins er nú 67 stig af 100 mögulegum, flokkur B3. Einn annar rekstraraðili hlýtur sama stigafjölda og bankinn en 90 stig er mesti fjöldi UFS stiga sem Reitun hefur gefið. Er bankinn í flokki A3 ásamt tveimur öðrum rekstraraðilum.

Nánari upplýsingar um niðurstöður Reitunar má finna hér.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Framkvæmdastjórn Arion banka hefur samþykkt sex heimsmarkmið sem bankinn leggur megináherslu á. Markmiðin sem unnið er sérstaklega að eru markmið 5 um jafnrétti kynjanna, markmið 7 um sjálfbæra orku, markmið 8 um góða atvinnu og hagvöxt, markmið 9 um nýsköpun og uppbyggingu, markmið 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu og markmið 13 sem snýr að aðgerðum í loftslagsmálum.

Starfsemi bankans, þar á meðal aðgerðir í jafnréttismálum, stefna og aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum, stuðningur við frumkvöðla og atvinnulífið í heild, framsækni í stafrænni þjónustu sem og virk þátttaka í uppbyggingu efnahagslífsins, ríma vel við þessi heimsmarkmið.

Stjórnarhættir sjálfbærnimála og áhættustýring

Á árinu 2021 var sjálfbærninefnd sett á laggirnar og stýring á sjálfbærniáhættu í tengslum við umhverfis- og félagslega þætti og stjórnarhætti skilgreind sem hluti af áhættustýringarkerfi bankans. Nýja nefndin leysti af hólmi stýrihóp um samfélagsábyrgð sem starfað hafði um árabil innan bankans. Bankastjóri er formaður sjálfbærninefndar sem hefur það meginhlutverk að fylgjast með frammistöðu bankans í tengslum við stefnu og skuldbindingar á sviði sjálfbærni og tryggja að tillit sé tekið til UFS þátta í ákvarðanatöku og áætlunum. Græn fjármögnunarnefnd og jafnréttisnefnd bankans heyra undir nefndina.

Í sjálfbærninefnd sitja, auk bankastjóra, framkvæmdastjórar viðskiptabankasviðs og fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs, markaða, upplifunar viðskiptavina og fjármálasviðs. Framkvæmdastjóri áhættustýringar og sjálfbærnistjóri sitja fundi án atkvæðisréttar. Ný áhættustefna bankans um sjálfbærni var samþykkt af stjórn á árinu og verður hún endurskoðuð árlega. Í þeirri stefnu kemur meðal annars fram að bankinn leitist við að tryggja að starfsemi hans og þjónusta hafi ekki í för með sér neikvæð áhrif á fólk eða umhverfi. Einnig kemur þar fram að bankinn styðji aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum sem sett hefur verið fram með það að markmiði að standast skuldbindingar Parísarsamkomulagins og að metnaðarfull áform um kolefnishlutleysi árið 2040 náist.

Í ársbyrjun 2022 var framkvæmt sérstakt áhættumat í tengslum við umhverfis- og félagslega þætti og stjórnarhætti bankans. Helstu áhættur sem snúa að félagslegum þáttum snúa að jafnrétti og fjölbreytileika starfsfólks, upplýsingagjöf og samskiptum við hagaðila. Í tengslum við umhverfismál voru ófullnægjandi aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum í tengslum við vörur og þjónustu, fylgni starfsfólks við stefnu bankans í umhverfis- og loftslagsmálum og hættan á grænþvotti metnar sem helstu áhættur. Niðurstöðurnar sýndu jafnframt að helstu áhættur bankans í tengslum við stjórnarhætti snúa að vörnum gegn peningaþvætti og þekkingu á viðskiptavinum, persónuvernd og upplýsingagjöf í tengslum við UFS þætti. Stýringar á fyrrgreindum áhættum innan bankans voru ýmist metnar fullnægjandi eða sterkar.

Arion banki hefur innleitt stefnu um aðgerðir gegn fjármunabrotum, svo sem peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka, mútur og spillingu og markaðssvik. Á grundvelli þessarar stefnu er lögð áhersla á að þekkja alla viðskiptavini og skilja viðskipti þeirra svo bankanum sé kleift að greina grunsamleg viðskipti. Nánari upplýsingar um stjórnskipulag og áhættustýringu vegna UFS og aðgerðir gegn fjármunabrotum má finna í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2021.

Ábyrg bankastarfsemi á tímum heimsfaraldurs

Starfsemi og rekstur Arion banka gekk í heild sinni vel á árinu þrátt fyrir áframhaldandi áskoranir í tengslum við heimsfaraldur COVID-19. Bankinn lagði kapp á að veita góða þjónustu en á sama tíma sýna ábyrgð í sóttvarnarmálum og finna lausnir með viðskiptavinum sínum vegna fjárhagslegra áhrifa faraldursins.

Heimsóknir í útibú bankans voru í takt við samkomutakmarkanir á hverjum tíma og voru viðskiptavinir og starfsfólk fljót að bregðast við breyttum aðstæðum hverju sinni. Viðskiptavinir voru hvattir til að bóka tíma í útibúum sem gerði starfsmönnum kleift að fylgja reglum um fjöldatakmarkanir án þess að skerða þjónustu við viðskiptavini. Jafnframt var lögð áhersla á að funda með viðskiptavinum með notkun fjarfundabúnaðar.

Viðskiptavinir voru áfram hvattir að nýta sér stafrænar þjónustuleiðir. Uppbygging og þróun stafrænna þjónustuleiða undanfarin ár hefur komið sér ákaflega vel í faraldrinum en framboð á fjölbreyttri fjármálaþjónustu í gegnum stafrænar lausnir hefur verið einn helsti styrkleiki bankans á þessum tímum. Ánægjulegt er að sjá að sífellt fleiri viðskiptavinir nýta sér netbankann og appið til að stofna til eða eiga í viðskiptum.

Starfsfólk bankans tókst á við fjölbreytt verkefni og margvíslegar áskoranir á árinu en lögð var áhersla á að hlúa vel að starfsfólki, tryggja öryggi þess og vellíðan. Ný fjarvinnustefna var kynnt sem býður upp á aukinn sveigjanleika en stór hluti starfsmanna færði starfsstöðvar sínar heim að einhverju leyti og vann hluta ársins heima. Fjarfundir voru nýttir með markvissum hætti til að tryggja upplýsingaflæði og góða samvinnu. Fjarvinnan á árinu hélt áfram að styrkja samvinnu landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis með tíðari samskiptum og fjarfundum. Viðburðir og fræðsluefni fyrir starfsfólk og viðskiptavini voru að mestu á rafrænu formi þetta árið, með góðum árangri.

Við hjá Arion banka lítum björtum augum fram á veginn og munum nýta okkur þá reynslu sem við höfum öðlast í heimsfaraldrinum til að veita áfram góða þjónustu hvar og hvenær sem er.

Ábyrgar lánveitingar og fjárfestingar

Arion banki er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking (PRB). Markmið meginreglnanna er að tengja starfsemi banka við mikilvæg alþjóðleg markmið og skuldbindingar á sviði sjálfbærni, eins og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og Parísarsamkomulagið. Á árinu 2021 var áfram unnið að innleiðingu meginreglnanna.

Til að aðlaga stefnu okkar að meginreglum PRB og markmiðum Parísarsamkomulagsins höfum við sett okkur umhverfis- og loftslagsstefnu og markmið. Stefnan var uppfærð lítillega á árinu 2021 og markmið uppfærð í takt við fyrirætlanir á næstu árum. Sjá nánari upplýsingar um umhverfis- og loftslagsstefnu bankans og markmið hér.

Lánareglur bankans kveða á um að horft skuli til umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta við mat á lánveitingum. Í útlánastefnu bankans er jafnframt sérstök áhersla lögð á sjálfbærni og að auka hlut grænna lánveitinga og hafa verið sett mælanleg markmið þar um. Arion banki gaf út heildstæða græna fjármálaumgjörð á árinu og fór í tvær grænar skuldabréfaútgáfur sem byggja á þeirri umgjörð. Græn innlán viðskiptavina héldu áfram að vaxa og dafna á árinu og mikil aukning varð í lánveitingum til viðskiptavina vegna kaupa á bílum sem ganga fyrir 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.

Nánari upplýsingar um græn fjármál Arion banka

Arion banki og Stefnir, dótturfélag bankans, voru með 1.352 milljarða í stýringu í árslok 2021. Þegar kemur að eignastýringu hefur Arion banki innleitt í starfshætti sína og starfsreglur verklag ábyrgra fjárfestinga sem felur í sér að við stýringu eigna er horft til þriggja grunnþátta sjálfbærni; umhverfis- og félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS). Bankinn er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar, Principles for Responsible Investment (UN PRI), og hefur frá árinu 2019 birt framvinduskýrslu. Þannig er ekki aðeins horft til fjárhagslegra þátta í eignastýringu heldur einnig annarra þátta sem taldir eru viðeigandi við greiningu á fjárfestingum og uppbyggingu eignasafna viðskiptavina. Sjá ítarlegri upplýsingar um ábyrgar fjárfestingar á vefsíðu bankans og í umfjöllun um markaði.

Ábyrg innkaup

Í samræmi við það meginmarkmið í stefnu bankans að skapa verðmæti til framtíðar, viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu til góða, leitar bankinn í nærumhverfi sitt eftir þjónustu eins og frekast er unnt að því gefnu að birgjar standist kröfur um gæði og hagkvæmni.

Nær allir stærstu og mikilvægustu birgjar bankans starfa á Íslandi. Þrátt fyrir að aðfangakeðja bankans teygi sig út fyrir landsteinana er fyrsti hlekkur hennar oftast á heimamarkaði. Þannig er einungis einn erlendur birgir á meðal 10 stærstu birgja bankans og aðeins 9 á meðal þeirra 50 stærstu. Stærsti hluti erlendra birgja bankans tengist innkaupum á hugbúnaði, ráðgjöf og þjónustu tengdri upplýsingatækni. Vélbúnaður er því sem næst allur keyptur með milligöngu innlendra aðila.

Innkaup skiptast með eftirfarandi hætti á milli 50 stærstu birgja
%

Í umhverfis- og loftslagsstefnu bankans kemur fram að við gerum þá kröfu til birgja að þeir taki mið af umhverfis- og loftslagsáhrifum í sinni starfsemi og að þegar valið stendur á milli tveggja sambærilegra tilboða munu loftslags- og umhverfissjónarmið ráða ákvörðun okkar.

Innkaupareglur sem voru samþykktar á haustmánuðum 2020 tóku mið af þessu og hófst þá innleiðing á nýju birgjamati þar sem áhersla er lögð á frammistöðu birgja varðandi umhverfis- og loftslagsmál en einnig jafnréttismál og vinnurétt. Árið 2020 fóru allir stærstu birgjar sem bankinn hefur gert útvistunarsamning við í gegnum birgjamatið. Birgjamatið er lagt fyrir birgja yfir ákveðnum stærðarmörkum og höfðu 23% þeirra farið í gegnum matið í árslok 2021. Á árinu fóru 70% nýrra birgja, sem falla undir þessa skilgreiningu og eru með samning við bankann, í gegnum matið.

Bankinn metur reglulega frammistöðu birgja sem hann á í viðvarandi viðskiptasambandi við en allir stærstu birgjar bankans sem bankinn hefur gert útvistunarsamninga við fóru í gegnum frammistöðumat á árinu 2021.

Siðareglur birgja, sem snúa að sjálfbærni og samfélagsábyrgð, voru innleiddar á árinu. Þær eru hluti af nýjum innkaupasamningum eða viðauki við eldri samninga.

Siðareglur birgja

Framlög til stjórnmálastarfs

Á árinu 2021 setti Arion banki sér sérstaka stefnu um framlög til stjórnmálastarfs. Í stefnunni kemur meðal annars fram að bankinn styrki þau stjórnmálasamtök sem bjóða sig fram á landsvísu við alþingiskosningar og óska sérstaklega eftir fjárstuðningi frá bankanum. Skilyrði er að samtökin eigi fulltrúa á Alþingi.

Stefna Arion banka um framlög til stjórnmálastarfs

Upplýsingar um framlög til stjórnmálastarfs árið 2021 má finna í GRI tilvísunartöflu.

Ábyrg vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetning til einstaklinga

Á árinu 2021 voru innleiddar verklagsreglur um ábyrga vörustjórnun þar sem áhersla er á að gæta hagsmuna viðskiptavina við þróun á vörum bankans og tryggja eins og kostur er að viðskiptavinir fái vörur og þjónustu við sitt hæfi. Verklag ábyrgrar vörustjórnunar er vel skilgreint innan Arion banka og tekur mið af viðmiðunarreglum Evrópska bankaeftirlitsins (EBA) um eftirlit með vöruþróun og vörustjórnun á smásölumarkaði.

Þá setti bankinn sér stefnu um ábyrga vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetningu til einstaklinga á árinu. Í stefnunni kemur fram að bankinn leitist við að bjóða upp á vörur og þjónustu sem eru viðskiptavinum, hluthöfum og samfélaginu öllu til hagsbóta.

Stefna um ábyrga vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetningu til einstaklinga

Skuldbindingar, vottanir og þátttaka í samstarfi á sviði sjálfbærnimála

UNEP FI og meginreglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi – PRB

Í júlí 2019 gerðist Arion banki aðili að UNEP FI, United Nations Environment Programme Finance Initiative (UNEP FI), sem er samstarfsvettvangur umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og fyrirtækja og stofnana í fjármálageiranum víðs vegar um heiminn. Þar er fjallað er um áskoranir í samfélags- og umhverfismálum.

Í september sama ár gerðist Arion banki aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi, Principles for Responsible Banking (PRB), sem mótaðar voru af UNEP FI og 30 alþjóðlegum bönkum. Nánari upplýsingar um aðild Arion banka að meginreglunum má sjá hér.

Hér má sjá samantekt á framgangi innleiðingar bankans á meginreglunum.

Samstarfsvettvangur um loftslagsmál og grænar lausnir – Grænvangur

Í september 2019 gerðist Arion banki einn af stofnaðilum samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir sem fékk nafnið Grænvangur. Hlutverk Grænvangs er að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að kolefnishlutleysi árið 2040. Þá mun vettvangurinn einnig vinna með íslenskum fyrirtækjum að markaðssetningu grænna lausna á alþjóðamarkaði og styðja við orðspor Íslands sem leiðandi lands á sviði sjálfbærni.

Í ársbyrjun 2020 undirritaði bankinn áskorunina Hreinn, 2 og 3! á vegum Grænvangs þar sem skorað er á fyrirtæki að lýsa yfir orkuskiptum í vegasamgöngum. Í verkefninu felst að nýskráningar fyrirtækjabíla sem knúnir eru áfram af jarðefnaeldsneyti verði lagðar af fyrir árið 2023. Með því verður Ísland í forystu á heimsvísu hvað varðar notkun umhverfisvænni orkugjafa. Er þessi yfirlýsing í takt við markmið sem sett hafa verið í tengslum við umhverfis- og loftslagsstefnu bankans þar sem fram kemur að ekki verði keyptir inn bílar nema þeir noti 100% endurnýjanlega orkugjafa frá og með árinu 2023.

Meginreglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar – UN PRI

Árið 2017 gerðist Arion banki aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar, Principles for Responsible Investment (UN PRI). Meginreglunum er ætlað að hjálpa fjárfestum að skilja áhrif umhverfisþátta, félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS) á fjárfestingar og styðja þannig við að aðilar að meginreglunum taki ófjárhagslega þætti inn í fjárfestingarákvarðanir sínar. Framvinduskýrsla eignastýringar bankans um ábyrgar fjárfestingar er birt árlega. Sjá má nánari upplýsingar um ábyrgar fjárfestingar í umfjöllun um markaði.

UN Global Compact – sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja

Arion banki hefur verið aðili að UN Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja, frá árinu 2016 og skilar árlega framvinduskýrslu til Global Compact. Í sáttmálanum eru sett fram 10 grundvallarviðmið sem snúa að mannréttindum, vinnumarkaði, umhverfi og baráttu gegn spillingu.

IcelandSIF – félag íslenskra fjárfesta um ábyrgar fjárfestingar

Arion banki hefur verið virkur þátttakandi í mótun og þróun ábyrgra fjárfestinga á Íslandi og var meðal stofnaðila IcelandSif, félags íslenskra fjárfesta um ábyrgar fjárfestingar, árið 2017. Bankinn hefur í gegnum árin átt fulltrúa í stjórn og vinnuhópum á vegum samtakanna. Stjórnarformaður IcelandSif er Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis, dótturfélags Arion banka.

Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum

Arion banki hefur hlotið viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum að undangengnu formlegu mati sem byggir á leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland gefa út. Arion banki fékk fyrst viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti árið 2016. Viðurkenningin er veitt í kjölfar ítarlegrar úttektar óháðs aðila á stjórnarháttum bankans, s.s. starfsháttum stjórnar, undirnefnda og stjórnenda. Viðurkenningin gildir í þrjú ár í senn. Sjá nánari upplýsingar um stjórnarhætti Arion banka hér og í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.

Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð

Arion banki hefur um árabil verið aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni. Hlutverk Festu er að auka þekkingu á samfélagsábyrgð og sjálfbærni fyrirtækja, stofnana og hvers kyns skipulagsheilda.

Bankinn var í ársbyrjun 2022 einn af aðalstyrktaraðilum Janúarráðstefnu Festu. Efni ráðstefnunnar var að þessu sinni sjálfbærni og framtíðaráform undir yfirskriftinni ,,Á réttum forsendum“ og voru fyrirlesarar í hópi fremstu fræðimanna og leiðtoga á alþjóðasviðinu þegar kemur að sjálfbærni og loftslagsmálum. Ráðstefnan fór fram með rafrænum hætti og var opin öllum.

Loftslagsyfirlýsing Festu og Reykjavíkurborgar

Árið 2015 gerðist Arion banki aðili að loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar ásamt 103 öðrum fyrirtækjum. Meðal verkefna á sviði loftslagsmála er að ná utan um umhverfisáhrif starfseminnar og að draga markvisst úr neikvæðum áhrifum hennar. Við höfum birt umhverfisuppgjör bankans árlega síðan 2016. Nánari upplýsingar um umhverfisuppgjör Arion banka má finna hér og í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.

Viljayfirlýsing um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar

Arion banki varð aðili að viljayfirlýsingu um fjárfestingar í þágu sjálfbærrar uppbyggingar þann 25. september 2020. Forsætisráðuneytið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) og Landssamtök lífeyrissjóða (LL) unnu að mótun yfirlýsingarinnar í víðtæku samráði við fulltrúa helstu aðila á fjármálamarkaði. Viljayfirlýsingin er í takti við stefnu Arion banka og markmið í þágu aukinnar sjálfbærni.

Jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins

Arion banki fékk á haustmánuðum 2018 jafnlaunamerki velferðarráðuneytisins eftir að hafa farið í gegnum endurvottun frá BSI á Íslandi og var þar með fyrstur banka til að hljóta merkið. Bankinn fékk upphaflega Jafnlaunavottun VR árið 2015, einnig fyrstur banka, og hefur farið í gegnum launagreiningar árlega síðan þá. Sjá nánar um jafnréttismál í umfjöllun um mannauð og í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.

Jafnréttissáttmáli UN Women og UN Global Compact

Frá árinu 2014 hefur bankinn verið aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Jafnréttissáttmálinn er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein, og snúa viðmiðin fyrst og fremst að kynjajafnrétti. Sjá nánari upplýsingar í umfjöllun um jafnréttismál í Arion banka og í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.

Jafnvægisvog FKA

Benedikt Gíslason bankastjóri undirritaði á árinu 2020 viljayfirlýsingu um Jafnvægisvogina þar sem fram kemur að Arion banki ætli að vinna markvisst að því næstu árin að jafna hlut kynja í efsta lagi stjórnunar. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA).

Bankinn hlaut fyrst viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir jafnt hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar á árinu 2020 og í annað sinn á árinu 2021. Sjá nánar hér.

Kolviður

Kolviður hefur séð um bindingu þeirrar kolefnislosunar sem hlýst af starfsemi Arion banka frá árinu 2019. Kolviður mun sem fyrr binda kolefni í gróðri og jarðvegi með landgræðslu og skógrækt á móti þeirri kolefnislosun sem á sér stað í rekstri bankans á árinu 2021. Áætlað er að Kolviður muni gróðursetja allt að 5.000 tré fyrir rekstrarárið 2021. Um er m.a. að ræða losun vegna bifreiða í rekstri bankans, húsnæðis, sorps, flugsamgangna og aksturs starfsfólks til og frá vinnu. Ekki er um vottaðar kolefniseiningar að ræða.

UFS viðmið Nasdaq

UFS viðmið Nasdaq á Norðurlöndunum snúa að upplýsingagjöf um starfsemi og áhrif skráðra fyrirtækja út frá umhverfis- og félagslegum þáttum og stjórnarháttum (UFS). Frá árinu 2016 hefur Arion banki nýtt viðmiðin við upplýsingagjöf um sjálfbærni en þau tóku formlega gildi árið 2017 og önnur útgáfa leiðbeininga var gefin út árið 2019. Sjá upplýsingagjöf út frá UFS viðmiðunum í samantekt á ófjárhagslegum upplýsingum.

PCAF – Partnership for Carbon Accounting Financials

Í nóvember 2021 gerðist Arion banki aðili að Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF). Um er að ræða alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem fjármálafyrirtæki fjármagna í gegnum lánveitingar og fjárfestingar. Arion banki mun hefja vinnu við að meta kolefnisspor lánasafns bankans á árinu 2022 út frá þessari aðferðafræði.

Nánari upplýsingar um aðild bankans að PCAF má finna hér.

CDP

Arion banki hefur frá árinu 2019 gert grein fyrir áhrifum sínum varðandi loftslagsmál í gegnum CDP, sem er alþjóðleg sjálfseignarstofnun sem hefur það markmið að búa til vettvang fyrir samræmda upplýsingagjöf varðandi umhverfismál, meðal annars fyrir fjárfesta, borgir, ríki og stjórnvöld. Yfir 13.000 fyrirtæki birtu umhverfisgögn í gegnum CDP á árinu 2021. Nánari upplýsingar um CDP má finna hér.

TCFD

Til að öðlast betri yfirsýn yfir áhættu tengda loftslagsbreytingum hefur bankinn í annað sinn nýtt sér tilmæli Task Force on Climate-related Financial Disclosures (TCFD). Umfjöllun um sjálfbærniáhættu í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2021 byggir meðal annars á þessum viðmiðum og þar er að finna greiningu á lánasafni bankans út frá loftslagsáhættu. Bankinn gerðist formlega aðili að TCFD í febrúar 2022. Sjá nánari upplýsingar í áhættuskýrslu Arion banka fyrir árið 2021.

Nýsköpun og stuðningur við frumkvöðla

Nýsköpun er mikilvægur þáttur í starfsemi bankans og eflir samkeppnishæfni hans til lengri tíma litið. Stöðug og markviss skoðun á því hvort núverandi aðferðafræði varðandi vörur, þjónustu og verkferla sé best til þess fallin að stuðla að árangri er einn af lykilþáttum starfseminnar.

 

Á undanförnum árum hefur bankinn komið að fjölda spennandi fjárfestingarverkefna með viðskiptavinum, m.a. með það að markmiði að efla atvinnulíf hér á landi. Á það ekki síst við um hugverkaiðnaðinn sem er vaxandi atvinnugrein á Íslandi og mikilvæg stoð í verðmætasköpun til framtíðar. Við leggjum okkur fram um að vera til staðar fyrir frumkvöðla og hvetjum til nýsköpunar og grósku með stuðningi og samstarfi.

Stuðningur Arion banka við nýsköpun og virk þátttaka í uppbyggingu efnahagslífsins styður við tvö af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, annars vegar það áttunda sem snýr að góðri atvinnu og hagvexti, og hins vegar það níunda sem snýr að nýsköpun og uppbyggingu.

Arion banki hefur fjárfest beint og óbeint í fjölda nýsköpunarfyrirtækja og tekið þátt í viðburðum sem tengjast nýsköpun. Á árinu 2021 var bankinn einn samstarfsaðila Nýsköpunarviku sem meðal annars stóð fyrir lausnarmóti (e. hackathon).

Stefnumarkandi samstarfsaðilar

 

Betri þjónusta við aðila á leigumarkaði í gegnum Leiguskjól

Leiguskjól er gott dæmi um samstarfsaðila sem bankinn hefur valið að starfa með og styður við þjónustu bankans. Leiguskjól tók þátt í Startup Reykjavík hraðlinum árið 2018. Þar hófst fjárfesting bankans í félaginu þegar bankinn eignaðist 6% hlut. Á árinu 2019 gerði bankinn samstarfssamning við félagið ásamt því að auka við fjárfestingu sína í félaginu og á bankinn nú 51% hlut. Fjárfestingin og samstarfssamningurinn við Leiguskjól eru liður í áherslu bankans á aukið samstarf við fjártæknifélög þar sem markmiðið er meðal annars að nýta grunnstoðir bankans og tengja við þann fókus og kraft sem felst í frumkvöðlastarfi.

Eyrir Sprotar – fjárfestingar í sprotafyrirtækjum

Arion banki er í samstarfi við Eyri Invest um rekstur sprota- og vaxtarsjóðsins Eyrir Sprotar slhf. Eyrir Invest og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins. Sjóðurinn er 6 ma. kr. að stærð og hefur fjárfest í ellefu fyrirtækjum.

Efling nýsköpunar á fjármálamarkaði með Fjártækniklasanum

Arion banki er aðili að Fjártækniklasanum sem er liður í að efla samstarf við fjártæknifélög. Tilgangur Fjártækniklasans er að efla nýsköpun í fjármálum. Að auki starfrækir Fjártækniklasinn nýsköpunarsetur og stendur fyrir ýmiss konar viðburðum.

Stuðningur við unga frumkvöðla

Arion banki hefur verið einn af aðalbakhjörlum Ungra frumkvöðla, Junior Achievement á Íslandi. Samtökin hafa það hlutverk að búa ungt fólk undir framtíðina og auka færni þess til atvinnuþátttöku og atvinnusköpunar með því að stuðla að aukinni nýsköpunar-, frumkvöðla- og viðskiptamenntun í framhaldsskólum. Samtökin stóðu fyrir samkeppni meðal framhaldsskólanema á árinu sem gaf nemendum færi á að kynnast frumkvöðlastarfinu af eigin raun í námi sínu. Alls voru 126 fyrirtæki stofnuð í samkeppninni og 30 fyrirtæki kepptu til úrslita. Fyrirtækið Hrauney, sem er í eigu sex nemenda við Verslunarskóla Íslands, var valið fyrirtæki ársins og keppti fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni Ungra frumkvöðla sem fór fram í Vilníus í Litháen.

Stuðningur við samfélagið

Arion banki heldur og kemur að fjölda fræðslufunda, ráðstefna og viðburða og er þannig virkur þátttakandi í samfélaginu. Fjöldi gesta sótti fræðslufundi, ráðstefnur og aðra viðburði á vegum bankans og var bankinn einnig þátttakandi í fjölmörgum ráðstefnum og sýningum á árinu. Vegna samkomutakmarkana hélt bankinn töluvert færri viðburði en venja er.

Dæmi um viðburði á árinu 2021

  • Um 450 manns fylgdust með kynningu á hagspá bankans. Fundurinn var sendur út í beinni útsendingu á Facebook-síðu bankans.
  • Fjöldi viðskiptavina og annarra gesta fylgdist með fræðslufundum um lífeyrissparnað á vegum bankans í beinu streymi frá Kringlunni.
  • Nemendur á framhaldsskólastigi komu í heimsókn í bankann og fræddust um fjárfestingar. Arion banki heimsótti einnig framhaldsskóla og hélt fyrirlestra um fjármálalæsi.
  • Fjöldi viðburða var í beinni útsendingu frá bankanum, þar má helst nefna hlutafjárútboð Play og Solid Clouds og blaðamannafund HSÍ.

Stuðningur og samstarf

Arion banki á í samstarfi við fjölda félagasamtaka og fyrirtækja og styður þau til góðra verka.

  • Arion banki var einn aðalstyrktaraðila Arctic Circle ráðstefnunnar sem fram fór í Hörpu í október. Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að samtali og samstarfi um framtíð og þróun norðurskautsins, en mikilvægi norðurslóða mun aukast á næstu áratugum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Ráðstefnuna sækir m.a. áhrifafólk úr stjórnmálum, efnahagslífi, háskólum og félagasamtökum.
  • Arion banki er einn af styrktaraðilum HSÍ en bankinn hefur um árabil stutt við íslenskan handknattleik.
  • Bankinn var hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ 2021 en fjölskyldan stóð við bak Íþróttasambands Íslands með það að markmiði að efla íslenskt íþróttalíf og þátttöku Íslands á erlendum vettvangi.
  • Arion banki er einn af aðalbakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra og styður undirbúning og þátttöku sambandsins á mótum árið 2022.
  • Arion banki stóð við bakið á Félagi kvenna í atvinnulífinu árið 2021 þar sem bankinn meðal annars hýsti viðburð þeirra Sýnileikadaginn.
  • Arion banki styrkir Nýsköpunarkeppni grunnskólanna með það að markmiði að efla nýsköpun á Íslandi.
  • Bankinn styður við fjölda góðgerðarmála á borð við Krabbameinsfélag Íslands og Mæðrastyrksnefnd.
  • Arion banki styrkir Skógræktarfélag Íslands. Styrkurinn felur meðal annars í sér stuðning við framkvæmd verkefnisins „Skógarvist, skógargátt og lýðheilsa“, en verkefninu er ætlað að hvetja til útivistar og þar með bættrar lýðheilsu. Einnig nýtist styrkurinn til skógræktar.
  • Arion banki kostar forsetalista Háskólans í Reykjavík en bankinn og HR rituðu undir samstarfssamning þess efnis í nóvember 2020. Á forsetalistann komast þeir nemendur sem ná bestum námsárangri á hverri önn. Markmiðið með listanum er að hvetja nemendur sem ná framúrskarandi árangri í námi til dáða og vekja athygli á árangri þeirra. Nemendur á forsetalista HR hljóta styrk sem nemur skólagjöldum einnar annar.
  • Að auki styðja útibú bankans um land allt hin ýmsu málefni í sinni heimabyggð.

Fréttir af sjálfbærni