Stjórn og yfirstjórn

Formaður

Brynjólfur Bjarnason

Brynjólfur er fæddur árið 1946. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi 20. nóvember 2014. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Brynjólfur er formaður stjórnar og situr í starfskjaranefnd, lánanefnd og endurskoðunarnefnd.

Brynjólfur útskrifaðist með MBA-gráðu frá University of Minnesota árið 1973. Hann útskrifaðist með cand.oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1971.

Brynjólfur var framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands frá árinu 2012 til 2014. Frá 2007 og til ársins 2010 var hann forstjóri Skipta. Brynjólfur var forstjóri Símans á árunum 2002 til 2007 og forstjóri Granda hf. frá 1984 til 2002. Hann var framkvæmdastjóri AB bókaútgáfu frá árinu 1976 til 1983. Brynjólfur var einnig forstöðumaður hagdeildar VSÍ frá 1973 til 1976. Brynjólfur hefur mikla reynslu af stjórnarsetu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum í gegnum tíðina og gegnt stjórnarformennsku í nokkrum þeirra.

Í dag situr Brynjólfur sem varamaður í stjórn Ferguson ehf. og stjórnarmaður í Marinvest ehf. og ISAL hf.

Varaformaður

Paul Horner

Paul er fæddur árið 1962. Paul er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Paul er varaformaður stjórnar, formaður lánanefndar stjórnar og situr í áhættunefnd stjórnar og endurskoðunarnefnd stjórnar.

Paul útskrifaðist með meistaragráðu í tónlist frá University of Oxford árið 1983 og er útskrifaður frá UK Chartered Institute of Bankers.

Paul býr að víðtækri alþjóðlegri reynslu af áhættustýringu og stjórnun á sviði viðskiptabanka-, fyrirtækjabanka-, einkabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi.

Paul gegndi margvíslegum stjórnunar- og áhættustýringarstöðum hjá Barclays PLC á árunum 1988 til 2003. Árið 2003 hóf Paul störf hjá The Royal Bank of Scotland Group (RBS) þar sem hann sinnti störfum framkvæmdastjóra og öðrum yfirmannsstöðum hjá Royal Bank of Scotland PLC. Paul var jafnframt skipaður í ýmsar stjórnunarstöður, m.a. á sviði áhættustýringar, allt til ársins 2019. Árin 2012 til 2017 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Coutts & Co Ltd. og forstjóri Coutts & Co Ltd. í Zurich frá 2016 til 2017. Árið 2018 var Paul framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Ulster Bank DAC, Dublin, og stjórnarmaður Coutts & Co Ltd. í Zurich frá 2018 til 2021.

Paul situr í stjórn AIB Group P.L.C. og á sæti í endurskoðunarnefnd stjórnar AIB, rekstarnefnd stjórnar og sinnir formennsku í áhættunefnd stjórnar. Einnig situr hann í stjórn LHV (UK) Ltd. og á sæti í áhættustýringar,- endurskoðunar- og tilnefningarnefnd félagsins. Þegar yfirlýsing þessi er gefin út er beðið eftir samþykki breska fjármálaeftirlitsins á formennsku hans í áhættunefnd félagsins.

Stjórnarmaður

Gunnar Sturluson

Gunnar er fæddur árið 1967. Hann var fyrst kjörinn í stjórn Arion banka á hluthafafundi þann 9. ágúst 2019. Hann er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Gunnar situr í lánanefnd stjórnar og formaður endurskoðunarnefndar stjórnar.

Gunnar útskrifaðist með Cand.Jur gráðu frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1992, útskrifaðist með LL.M gráðu frá Háskólanum í Amsterdam árið 1995 og hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 1993 og fyrir Hæstarétti Íslands árið 1999.

Gunnar starfaði fyrir Málflutningsskrifstofuna árin 1992-1999 og var meðeigandi stofunnar frá 1995. Hann hefur starfað hjá LOGOS lögmannsþjónustu frá árinu 2000 sem meðeigandi og starfaði sem faglegur framkvæmdastjóri 2001-2013. Gunnar sinnti stundakennslu í samkeppnisrétti við lagadeild Háskóla Íslands 1995-2007.

Gunnar hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum og var meðal annars stjórnarmaður í GAMMA hf. 2017-2019, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins ohf. 2016-2017, var stjórnarmaður í gerðardómi Viðskiptaráðs Íslands, forseti FEIF, alþjóðasamtaka Íslandshestafélaga frá 2014, stjórnarformaður Íslenska dansflokksins 2013-2016 og kjörinn í landskjörstjórn af Alþingi 2013-2017.

Stjórnarmaður

Liv Fiksdahl

Liv er fædd árið 1965. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á aðalfundi 20. mars 2019. Hún er ekki hluthafi í bankanum og er óháður stjórnarmaður. Liv sinnir formennsku í starfskjaranefnd stjórnar og tækninefnd stjórnar. Hún situr einnig í endurskoðunarnefnd stjórnar.

Liv útskrifaðist með gráðu í fjármálum og stjórnun frá Trondheim Business School (í dag NTNU) árið 1986. Árið 2018 kláraði Liv Programs in Big Data-Strategic Decisions and Analysis, The Innovative Technology Leader and Design Thinking frá Stanford University og Advanced Management Program for Executives in Management, Innovation and Technology frá Massachusetts Institute of Technology (MIT).

Liv er aðstoðarframkvæmdastjóri innan fjármálaþjónustu hjá Capgemini Invent í Noregi og situr í stjórn hjá Posten Norge AS og Intrum AB. Liv gegndi áður ýmsum stjórnarstöðum hjá DNB og var hluti af framkvæmdastjórn bankans í 10 ár, m.a. sem aðstoðarframkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs/rekstrarsviðs (e. Group EVP, CIO/COO) og aðstoðarframkvæmdastjóri rekstarsviðs (Group EVP, COO and Operations). Liv hefur einnig víðtæka reynslu frá DNB og hefur gegnt ýmsum öðrum stöðum innan bankans. Áður starfaði Liv m.a. sem viðskiptastjóri fyrirtækja hjá Danske Bank/Fokus Bank og Svenska Handelsbanken. Liv hefur setið í fjölmörgum stjórnum, m.a. hjá Scandinavian Airlines SAS AB, BankAxept, Sparebankforeningen, Doorstep, Finans Norge og í bæjarstjórn sveitarfélagsins Þrándheims.

Stjórnarmaður

Steinunn Kristín Þórðardóttir

Steinunn er fædd árið 1972. Hún var fyrst kjörin í stjórn Arion banka á hluthafafundi 30. nóvember 2017. Steinunn er hluthafi í bankanum (hlutafjáreign hennar er 12.000 hlutir) og er óháður stjórnarmaður. Steinunn sinnir formennsku í áhættunefnd stjórnar og situr í starfskjaranefnd stjórnar og tækninefnd stjórnar.

Steinunn er með meistaragráðu í alþjóðlegri stjórnun (MIM) frá Thunderbird, Arizona og BA gráðu í alþjóðaviðskiptum og stjórnmálafræði frá University of South Carolina.

Steinunn er fjármálastjóri hjá Arundo Analytics AS í Osló í Noregi. Steinunn starfaði áður sem framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance í Noregi frá 2015 til 2017 og sem tímabundinn framkvæmdastjóri hjá Beringer Finance á Íslandi auk þess að gegna stöðu forstöðumanns alþjóðadeildar fyrirtækisins á sviði matvæla og sjávarfangs árið 2017. Þá stofnaði Steinunn ráðgjafafyrirtækið Akton AS og Akton Capital AS í Noregi og sinnti hlutverkum framkvæmdastjóra í tengslum við fjárfestingar og ráðgjöf. Hún starfaði áður hjá Íslandsbanka (síðar Glitni), sem framkvæmdastjóri starfsemi bankans á Bretlandi og fyrir það leiddi hún alþjóðalánveitingar sem forstöðumaður bankans.

Steinunn sat áður í ýmsum stjórnum í Evrópu og var í stjórn Bankasýslu ríkisins árið 2011. Í dag er Steinunn stjórnarformaður Akton Capital AS og Akton AS og situr í stjórn Cloud Insurance AS. Hún situr jafnframt í stjórn Norsk-íslenska viðskiptaráðsins. Þá situr Steinunn í tilnefningarnefnd Símans.

Varamenn í stjórn

Sigurbjörg Ásta Jónsdóttir lögfræðingur og Þröstur Ríkharðsson hæstaréttarlögmaður.

Bankastjóri

Benedikt Gíslason

Benedikt er fæddur árið 1974. Hann tók við starfi bankastjóra Arion banka 1. júlí 2019.

Benedikt hóf störf hjá FBA (síðar Íslandsbanka) árið 1998, sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás, var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt starfaði um tíma sem ráðgjafi hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og var varaformaður starfshóps stjórnvalda um afnám fjármagnshafta á árunum 2013-2016. Hann sat í stjórn Kaupþings á árunum 2016-2018 og var ráðgjafi Kaupþings í málefnum Arion banka. Hann tók sæti í stjórn Arion banka í september 2018 og var í stjórn bankans þar til hann tók við starfi bankastjóra þann 1. júlí 2019.

Benedikt útskrifaðist með C.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998.

Skipurit 2021

 

Þjónustusvið

Aðstoðarbankastjóri og Framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs

Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason

Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason er fæddur árið 1982. Hann tók við starfi aðstoðarbankastjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs í september 2019.

Ásgeir Helgi hóf störf hjá Straumi fjárfestingarbanka árið 2004 og varð síðar regluvörður samstæðunnar, starfaði hjá LOGOS lögmannsþjónustu í Reykjavík og London um 2009-2012 og var yfirlögfræðingur hjá MP banka á árunum 2012-2015. Hann var meðlimur í framkvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015 og starfaði sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku á árunum 2015-2019. Ásgeir kenndi viðskipti með fjármálagerninga o.fl. við lagadeild Háskólans í Reykjavík 2010-2016 og hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja hérlendis og erlendis.

Ásgeir er með lögmannsréttindi og hefur lokið lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík.

Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs 

Iða Brá Benediktsdóttir

Iða Brá Benediktsdóttir er fædd 1976. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs í júlí 2017.

Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, nú síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf. Iða Brá er varaformaður stjórnar Varðar trygginga hf.

Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með MSc í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri markaða

Margrét Sveinsdóttir

Margrét er fædd árið 1960. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra eignastýringarsviðs Arion banka í febrúar 2009. Í september 2019 tók hún við starfi framkvæmdastjóra markaða.

Frá 2007 til 2009 starfaði hún sem forstöðumaður samskipta við erlendar fjármálastofnanir innan fjárstýringar Glitnis hf./Nýja Glitnis. Á árunum 1990 til 2007 starfaði Margrét sem forstöðumaður Verðbréfavaktar ásamt eignastýringar einstaklinga hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka, síðar Eignastýringar Glitnis hf. Frá árinu 1985 til 1988 starfaði hún í lánadeild Iðnaðarbanka Íslands þar sem hún var um tíma forstöðumaður. Margrét hefur setið í fjölmörgum stjórnum og má þar nefna: stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF, stjórn OKKAR líftrygginga hf. og í stjórnum nokkurra sjóðafyrirtækja í Lúxemborg.

Margrét útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1990 og cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum.

Stoðsvið

Yfirlögfræðingur

Birna Hlín Káradóttir

Birna Hlín er fædd árið 1978. Hún tók við starfi yfirlögfræðings Arion banka í september 2019 og tók sæti í framkvæmdastjórn í júní 2020.

Frá árinu 2016 var Birna meðeigandi og yfirlögfræðingur Fossa markaða. Hún var yfirlögfræðingur Straums fjárfestingarbanka á árunum 2011 til 2015. Birna Hlín starfaði hjá Straumi-Burðarás fjárfestingabanka á árunum 2007 til 2011 og var yfirlögfræðingur félagsins frá árinu 2009. Birna hefur kennt lög um fjármálamarkaði o.fl. í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Hún hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja hérlendis og erlendis og er í dag stjórnarmaður í Lögmannafélagi Íslands.

Birna Hlín er með AMP-gráðu frá IESE Business School í Barcelona og lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með málflutningsréttindi og próf í verðbréfaviðskiptum.

Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Ólafur Hrafn Höskuldsson

Ólafur Hrafn er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs í september 2021.

Ólafur Hrafn hóf störf hjá Arion banka árið 2019 er hann tók við starfi forstöðumanns stefnumótunar og þróunar á skrifstofu bankastjóra. Ólafur starfaði hjá Royal Bank of Scotland í London og New York á árunum 2010 til 2016. Árið 2016 tók hann við starfi framkvæmdastjóra hjá Títan fjárfestingafélagi sem hann sinnti til ársins 2019. Áður vann Ólafur Hrafn meðal annars hjá CreditInfo í Þýskalandi og Straumi fjárfestingabanka. Ólafur situr í stjórn Varðar og Landeyjar.

Ólafur Hrafn útskrifaðist með cand.oecon-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2006 með reikningshald og endurskoðun sem aðalgrein. Hann hefur öðlast löggildingu til fjárfestingaráðgjafar í Bretlandi (UK FSA approved person status) og í Bandaríkjunum (US FINRA series 79).

Framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir

Steinunn Hlíf er fædd árið 1974. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra upplifunar viðskiptavina í september 2021.

Steinunn Hlíf var framkvæmdastjóri ráðgjafar og þjónustu hjá Verði og sat í framkvæmdastjórn félagsins á árunum 2008 til 2021. Hún starfaði hjá Kaupþingi/KB banka á árunum 1999 til 2005 og gegndi þar m.a. starfi markaðsstjóra. Á árunum 2005 til 2008 starfaði Steinunn sem markaðsstjóri Sjóvár og sem forstöðumaður á sölu- og markaðssviði hjá Landsbankanum.

Steinunn er með BA-gráðu í viðskiptafræði frá Flagler College í Flórída í Bandaríkjunum.

Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs

Styrmir Sigurjónsson

Styrmir er fæddur árið 1974. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Arion banka í mars 2020.

Frá árinu 2009 starfaði Styrmir hjá Natera í Bandaríkjunum, en Natera sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar og er skráð í Nasdaq CM kauphöllina. Styrmir gegndi frá árinu 2012 ýmsum stjórnunarstörfum hjá Natera og var framkvæmdastjóri rannsókna og vöruþróunar frá árinu 2017. Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbankanum Citi.

Styrmir er með doktors- og meistarapróf í rafmagnsverkfræði frá Stanford og CS-próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.

Innra eftirlit

Regluvörður

Hákon Már Pétursson

Hákon er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi regluvarðar Arion banka í apríl árið 2011.

Á árunum 2009 til 2011 starfaði Hákon hjá KVASIR lögmenn í ýmsum málum tengdum bankastarfsemi og fjárhagslegri endurskipulagningu. Á árunum 2006 til 2009 starfaði Hákon sem sérfræðingur á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins (FME). Á þessum tíma var hann m.a. fulltrúi FME í hópi sérfræðinga vegna bæði MiFID og yfirtökutilskipunarinnar, hjá nefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR), auk þess að vera gestafyrirlesari hjá bæði Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.

Hákon útskrifaðist sem lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2007. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og vottun í aðgerðum gegn peningaþvætti.

Innri endurskoðandi

Sigríður Guðmundsdóttir

Sigríður er fædd árið 1974. Hún var skipuð forstöðumaður innri endurskoðunar Arion banka í febrúar 2019.

Sigríður starfaði sem innri endurskoðandi Marel hf. frá árinu 2010 og þar til hún kom til starfa í bankanum. Áður starfaði hún á fjármálasviði Alcoa Fjarðaáls og í innri endurskoðun Landsbankans. Sigríður sat í endurskoðunarnefnd Stefnis, dótturfélags bankans á árunum 2014-2018, og í endurskoðunarnefnd Sparisjóðs Austurlands á árunum 2009-2019.

Sigríður útskrifaðist með M.Sc-gráðu í fjármálum og reikningshaldi frá London School of Economics and Political Science árið 2007 og með cand.oecon.-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hún CIA-faggildingu innri endurskoðenda árið 2006. Aðrar fagvottanir frá alþjóðsamtökum innri endurskoðenda (IIA) sem Sigríður hefur lokið eru CFSA, CRMA og CCSA.

Framkvæmdastjóri áhættustýringar

Úlfar Freyr Stefánsson

Úlfar Freyr er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra áhættustýringar í maí 2020.

Úlfar Freyr hóf störf í áhættustýringu Arion banka árið 2013 eftir að hafa starfað hjá Kaupþingi frá árinu 2010, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar. Úlfar var forstöðumaður eignasafnsáhættu Arion banka á árunum 2013-2015 er hann tók við sem forstöðumaður efnahagsáhættu innan áhættustýringar.

Úlfar er með doktors- og meistarapróf í stærðfræði frá Georgia Institute of Technology og B.S. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Breytingar á árinu

Í september á árinu 2021 urðu þær breytingar á framkvæmdastjórn Arion banka að Ólafur Hrafn Höskuldsson tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs þegar Stefán Pétursson lét af störfum. Einnig tók Steinunn Hlíf Sigurðardóttir við starfi framkvæmdastjóra upplifunar viðskiptavina, sem er nýtt svið innan bankans. Með stofnun þessa nýja sviðs fjölgaði um einn í framkvæmdastjórn bankans.